Stimpilklukkur
Kjaran hefur selt stimpilklukkur frá Amano allt frá árinu 1970. Klukkurnar frá Amano eru rómaðar fyrir einfaldleika og hversu endingargóðar og sterkar þær eru. Því skal engan undra hversu víða stimpilklukkur frá Amano er að finna í íslenskum fyrirtækjum.
Amano er alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur verið starfrækt frá árinu 1931, en þá kynnti það sína fyrstu stimpilklukku.
Frá þeim tíma hefur Amano sérhæft sig í ýmis konar tímamælingabúnaði, eins og t.d. gjaldmælum fyrir almenningsbílastæði og stimpilklukkum, auk tækja og hugbúnaðar til aðgangseftirlits.
BX 1500 – Stimpilklukka
Fullkomin stimpilklukka með sex dálka stimplun. Hentar vel á allt að 30 manna vinnustað.
- Sjálfvirk mötun á stimpilkort
- Stimplar bæði dagsetningu og tíma
- Prentar í sex dálka
- Stór skífa
- Innbyggt lithium rafhlaða
- Þyngd, 2,8 kg.
- Auðveld í stillingu