Lím og spartl

Bjóðum fjölbreytt úrval undirlagsefna fyrir gólfdúka, teppi, flísar og lökkuð gólf. Forbo Eurocol BV framleiðir lím, spartl og grunna í verksmiðju sinni í Hollandi, en strangar reglur um umhverfisvernd þar í landi hafa gert það að verkum að Eurocol hefur ávallt verið framarlega í þróun umhverfisvænna undirlagsefna.

514 Eurosafe Lino Plus

Linoleumlím, leysiefnalaust gólflím fyrir lagningu á linoleum í lengjum, flísum, renningum og mósaík. Rakaþolið og með afar sterkt byrjunargrip. Þolir skrifsborðsstóla á hjólum.

  • Efnisnotkun : 400-450 gr/m²
  • Pakkning: 7 kg / 14kg
  • Verkfæri : Límspaði B1

614 Eurostar Lino Plus

Linoleumlím, afar stöðugt í rúmtaki og haggast ekki, gólflím fyrir linoleum í lengjum, flísum, renningum og mósaík. Sterkt byrjunargrip og þolir skrifborðsstóla á hjólum. Mjög gott rakaþol.
Vottun: EC1 – Very low emission / Blaue Engel

  • Efnisnotkun : 260-300 gr/m²
  • Umbúðir : 11 kg
  • Verkfæri : Límspaði B1

646 Eurostar Premium

Rakaþolið lím fyrir linoleum flísar, vinylflísar, gúmmíflísar og teppaflísar með PVC undirlagi. Hentar vel fyrir baðherbergi, þvottahús og andyri, staði þar sem bleyta er oft á gólfi. Vottun: EC1 – Very low emission
  • Efnisnotkun : 250-350 gr/m²
  • Pakkning: 12kg
  • Verkfæri : Límspaði A3

540 Eurosafe Special

Sérlím, leysiefnalaust gólflím fyrir lagningu á PVC-gólfefnum í lengjum og flísum, mjúku vínyl og gólfteppum með PVC- eða PU-svampgrunni. Hentar einnig við lagningu á flötu gólfefni á borð við gúmmílengjur og gólfefni úr pólýolefine. Lagningu má framkvæma ,,blauta“, ,,hálfblauta“ eða ,,þurra“ eftir límburði og aðstæðum. Þolir skrifborðsstóla á hjólum. 

  • Efnisnotkun : 250-350 gr/m²
  • Umbúðir : 3.6 kg. / 12 kg.
  • Verkfæri : Límspaði A2

640 Eurostar Special

Mjög umhverfisvænt og lyktarlaust lím fyrir gólfefni úr PVC og gúmmíi.
Vottun: EC1 Plus – Very low emission + Der Blaue Engel 

  • Efnisnotkun : 225-275 gr/m²
  • Umbúðir : 12 kg
  • Verkfæri : Límspaði A2

543 Eurosafe Deco

Hágæðalím fyrir LVT vinylflísar. Borið á með rúllu eða skrúbb. Flísarnar má setja í blautt límið, hálfþornað eða þurrt. Mikil viðloðun. Þolir skrifborðsstóla á hjólum. 

  • Efnisnotkun : 100-150 gr/m²
  • Pakkning: 10 kg
  • Verkfæri : Málningarúlla / Skúbbur

960 Europlan Super

Flotspartl
Frábært jöfnunarefni, stórgott sjálfsléttandi flotspartl á steingólf. Mikið pressuþol. Þolir skrifborðsstóla á hjólum. Þykkt umferðar: minnst 2mm – mest 10 mm.
Vottun: EC1 – Very low emission 

  • Efnisnotkun : 1,5kg/m² per mm
  • Pakkning: 23 kg
  • Verkfæri : Múrskeið eða tenntur jöfnunarspaði ásamt gaddarúllu. Dælubúnaður.

990 Europlan Direct

Flotspartl
Jöfnunarefni notað án grunns, sjálfsléttandi frábært flotspartl. Oftast hægt að nota án grunns. Þolir skrifborðsstóla á hjólum. Þykkt umferðar: minnst 1mm – mest 20mm.
Vottun: EC1 Plus – Very low emission 

  • Efnisnotkun : 1,5kg / m² / mm.
  • Pakkning: 23 kg
  • Verkfæri : Múrskeið eða tenntur jöfnunarspaði ásamt gaddarúllu eða dælubúnaði

945 Europlan Solid

Viðgerðarefni
Fljótþornandi stíft viðgerðarefni til að fylla stórar holur og sprungur í steingólfum. Lágmarksþykkt: 2mm. Hámarksþykkt: 50mm.
Vottun: EC1 Plus – Very low emission

  • Efnisnotkun : 1,5kg / m² per mm
  • Pakkning: 23 kg
  • Verkfæri : Múrskeið

044 Europrimer Multi

Alhliða grunnur Bætir viðloðun flotefna og múrblandaðs flísalíms við steingólf og anhydrite undirlagsefni. Hentar einnig á viðargólf, malbik, terrazzo, keramikflísar og vatnsþolnar límleyfar. Vottun: EC1 Plus – Very low emission
  • Efnisnotkun : um 50-200 gr/m²
  • Pakkning: 10L
  • Verkfæri : Svamprúlla / Málningarrúlla / Úðabrúsi

026 Euroblock Multi

Rakagrunnur (DPM) Lokar á raka í nýsteyptum gólfum. Hentar vel undir allar gerðir gólfefna. Borið á í tveimur til þremur umferðum. Vottun: EC1 Plus – Very low emission
  • Efnisnotkun : 50-75 gr/m²
  • Pakkning: 10L
  • Verkfæri : Málningarrúlla / Skrúbbur

041 Europrimer EL

Leiðandi grunnur
Til notkunar með leiðandi gólfefnum og leiðandi lími þar sem gólf eru jarðtengd til að losna við stöðurafmagn.

  • Efnisnotkun : 120-150 gr/m²
  • Pakkning: 10L
  • Verkfæri : Málningarúlla

233 Eurocol contact

Fljótþornandi kontaktlím, notað við lagningu á tvílímdum PVC-gólfefnum, gúmmí og plastjöðrum. Hentar auk þess fyrir linoleum, leður, kork, teppi og foam. Grípur strax. Mikill styrkur. Eldfimt.

  • Efnisnotkun : 200-250 gr./m²
  • Umbúðir : 5L / 10L
  • Verkfæri : Spaði A1, bursti.

650 Eurostar Fastcol

Mjög umhverfisvænt kontaktlím fyrir teppi í stigum, tröppunef og vegglista, kork, veggdúka o.fl. Grípur vel. Mikill styrkur.
Vottun: EC1 Plus – Very low emission 

  • Efnisnotkun : 250 gr/m²
  • Pakkning : 7,5 kg
  • Verkfæri : Rúlla

Gerum tilboð í efni og vinnu og sjáum um framkvæmdina frá upphafi til enda. Hafðu samband við sölumann í síma 510-5510 eða sendu tölvupóst [email protected]