Pappírstætarar

Pappírstætarar eru mikilvæg tæki sem koma í veg fyrir upplýsingaleka, draga úr förgunarkostnaði og stuðla að bættri umhverfisvernd.

EBA pappírstætarar eru framleiddir að öllu leiti í Balingen í Þýskalandi undir ströngu gæðaeftirliti. Hönnun tætarana tekur mið af DIN 66399 öryggisstaðlinum um förgun gagna. Öryggishlíf úr glæru plasti er yfir skurðaropi sem varnar því að smáhlutir fari í tætarann. Skynjari kemur í veg fyrir að ruslapoki yfirfyllist. Öryggisrofi er á hurð. Nýtískuleg hönnun og aðlaðandi kassi úr gráum við.

Eigum gott úrval tætara á lager. Sérpöntum allar aðrar gerðir. Nokkur dæmi um vinsæla pappírstætara má sjá hér að neðan. 
Öll verð með vsk.

EBA 1324 Pappírstætari

Frábær tætari fyrir skrifstofuna eða við skrifborðið. Nettur en öflugur. Vandaður að gerð og gæðalegur í útliti. Lífstíðarábyrgð á skurðarvalsi. Þýsk gæðavara.

  • 240 mm tætararauf
  • 50 lítra skrápur / 35 lítra ruslatunna
  • 390 W mótor
  • 22 kg
  • EBA 1324C
  • Tæting: 4×40 mm bútaskurður
  • Afköst: 13-15 | 11-15 blöð (70|80 gr/m2)
  • Öryggisstig: P-4
  • Tætir pappírsklemmur og kort

EBA 2127 Pappírstætari

Öflugur tætari fyrir skrifstofuna. Stór skápur. Þægileg vinnuhæð. Lífstíðarábyrgð á skurðarvalsi. Þýsk gæðavara.

  • 260 mm tætararauf
  • 100 lítra skrápur / 75 lítra ruslatunna
  • 280W mótor
  • 870 x 500 x 377 mm (H x B x D)
  • 30,5 kg
  • EBA 2127C
  • Tæting: 4×40 mm bútaskurður
  • Afköst: 16-18 | 13-15 blöð (70|80 gr/m2)
  • Öryggisstig: P-4
  • Tætir pappírsklemmur og kort

EBA 2331 Pappírstætari

Öflugur tætari fyrir skrifstofuna. Stór skápur. Tætararauf fyrir A3 pappír. Þægileg vinnuhæð. Lífstíðarábyrgð á skurðarvalsi. Þýsk gæðavara.

  • 310 mm tætararauf
  • 140 lítra skápur / 120 lítra ruslatunna
  • 640W mótor
  • 930 x 538 x 470 mm (H x B x D)
  • 52 kg
  • EBA 2331C
  • Tæting: 4×40 mm bútaskurður
  • Afköst: 25-27 | 21-23 (70|80 gr/m2)
  • Öryggisstig: P-4
  • Tætir pappírsklemmur, kort og geisladiska

EBA 2339 Pappírstætari

Öflugur tætari fyrir skrifstofuna. Breið tætararauf. Mjög stór skápur. Þægileg vinnuhæð. Lífstíðarábyrgð á skurðarvalsi. Þýsk gæðavara.

  • 400 mm tætararauf
  • 210 lítra skápur / 165 lítra ruslatunna
  • 640W mótor
  • 970 x 640 x 590 mm (H x B x D)
  • 84 kg
  • EBA 2339C
  • Tæting: 4×40 mm bútaskurður
  • Afköst: 19-22 | 16-19 (70|80 gr/m2)
  • Öryggisstig: P-4
  • Tætir pappírsklemmur, kort og geisladiska

EBA 5141 Pappírstætari

Mjög öflugur tætari fyrir skrifstofuna með 1600W mótor. Breið tætararauf. Mjög stór skápur. Þægileg vinnuhæð. Lífstíðarábyrgð á skurðarvalsi. Þýsk gæðavara.

  • 405 mm tætararauf
  • 210 lítra skápur / 165 lítra ruslatunna
  • 1600W mótor
  • 1010 x 640 x 590 (H x B x D)
  • 115 kg
  • EBA 5141C
  • Tæting: 4×40 mm bútaskurður
  • Afköst: 34-39 | 40-45 bls (70|80 gr/m2)
  • Öryggisstig: P-4
  • Tætir pappírsklemmur, kort, geisladiska og disklinga

EBA 0101 Diskagatari

Frábær lausn fyrir förgun á hörðum diskum úr tölvum, prenturum og ljósritunarvélum. Ýttu á einn hnapp og EBA 0101 HDP gatar diskinn og gerir hann algjörlega ónothæfan. Skemmdir á vélbúnaði og rafrásum uppfylla öryggisstaðal H-3 samkvæmt DIN 66399 staðli.

  • Diskastærðir: 3,5″ / 2,5″
  • Vélarafl: 640W
  • Stærð: 850 x 495 x 470 mm ( H x B x D)
  • Þyngd: 63 kg

EBA 5146C Pappírstætari

Öflugur pappírstætari með trekt sem tekur við sléttum og krumpuðum pappír. Stór hurð opnast að framanverðu og veitir gott aðgengi að ruslatunnu á hjólum sem gerir það auðvelt að skipta um poka.

  • Breidd tætararaufar: 460 mm
  • Stærð ruslatunnu: 230 lítrar
  • Vélarafl: 2,2 kW, þriggja fasa
  • Stærð: 1700 x 740 x 765 mm (H x B x D)
  • Þyngd: 256 kg
  • Fjöldi blaða (70g/m² | 80g/m²): 35-70 | 29-60
  • Bútaskurður: 4×60 /2×15 mm krosskurður
  • Öryggisstig: P-3 / P-5

EBA 6040C Pappírstætari

Öflugur pappírstætari með stóru inntaksbori og færibandi. Ruslapokinn er í hjólagrind sem auðvelt er að færa til þegar skipt er um poka. Tætarinn er á hjólum sem gerir hann færanlegan á milli herbergja með einföldum hætti (mesta breidd án hliðarborða er 690 mm).

  • Breidd tætararaufar: 410 mm
  • Stræð ruslatunnu: 300 lítrar
  • Vélarafl: 4 kW / 3kW, þriggja fasa
  • Stærð: 1440 x 1240 x 1700 mm (H x B x D)
  • Þyngd: 350 kg

EBA 7050-2C Pappírstætari

Risastór tætari fyrir mjög mikið magn og förgun á möppum í heilu lagi. Stórt inntaksborð og færiband. Ruslapokinn er í hjólagrind sem auðvelt er að færa til þegar skipt er um poka. Tætarinn er á hjólum.

  • Breidd tætararaufar: 500 mm
  • Stærð ruslatunnu: 300 lítrar
  • Vélarafl: 9 kW, þriggja fasa
  • Stærð: 1714 x 1036 x 2170 mm (H x B x D)
  • Þyngd: 1130 kg