Kjaran hefur allt frá 1970, selt stimpilklukkur frá Amano. Klukkurnar frá Amano eru rómaðar fyrir einfaldleika og hversu endinga góðar og sterkar þær eru. Því skal engan undra hversu víða stimpilklukkur, frá Amano er að finna í íslenskum fyrirtækjum.
Amano er alþjóðlegt fyrirtæki, starfrækt frá 1931, en þá kynnti það sína fyrstu stimpilklukku.
Frá þeim tíma hefur Amano sérhæft sig í ýmis konar tímamælingabúnaði, eins og t.d. gjaldmælum fyrir almenningsbílastæði og stimpilklukkum, auk tækja og hugbúnaðar til aðgangseftirlits.