Kjaran ehf. hefur fengið viðurkenningu sem „Framúrskarandi fyrirtæki 2010“, en það er greiðsluhæfisfyrirtækið Creditinfo sem stendur að þessu vali. Viðurkenninguna hljóta 177 fyrirtæki úr 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá.
Valið er m.a. byggt á skilvísi, eiginfjárstöðu, afkomu o.fl. undanfarin 3 ár.