Mikilvægt er að gólfið líti ekki bara vel út í dag, heldur að það haldist fallegt í 5, 10 eða 15 ár.
NÝTT TOPSHILED2 STENDUR AF SÉR MEIRA ÁLAG
Með tilkomu Topshield2 varnarhúðarinnar ná Marmoleum gólfefni nýjum hæðum. Topshiled2 er hannað til að veita vörn gegn sliti af daglegri notkun og hefur enn meira viðnám gegn óhreinindum, rispum og blettum svo gólfdúkurinn haldi góðu útliti sínu yfir lengri tíma.
Ólíkt PUR-yfirborði, þar sem óhreinindi og slit safnast upp í örrispum með tímanum, má fríska upp og endurnýja Marmoleum gólfefni þannig að áferðin verður sem ný og endingin margfaldast.
Marmoleum gólfdúkur með Topshield2 þarnast ekki sérstaks polymer áburðar (bónunar) fyrir notkun. Með Topshield2 er gólfið tilbúið fyrir öll ræsti- og viðhaldskerfi.
Topshield2 er í tveimur lögum. Grunnlagið er sveigjanleg húð sem myndar sterka tengingu við linoleum dúkinn og ver hann gegn útfjólubláum geislum. Annað lagið (slitlagið) er hart yfirborð sem hrindir frá sér óhreinindum og er rispu- og blettaþolið.
Nánari upplýsingar er að finna í PDF skjali HÉR